4. daga hringferð um Vestfirði

22. – 25. ágúst 2024

Dagskrá:

22. ágúst
Fimmtudagur
Ekið kl. 09:00 frá Digranesvegi 7, Kópavogi um Hvalfjarðargöng, Bröttubrekku og Þröskulda til Hólmavíkur, þar sem við snæðum hádegisverð. Síðan er haldið um Steingrímsfjarðarheiði og Ísafjarðardjúp, þar sem við þræðum hina mörgu firði sem inn úr því ganga, til Ísafjarðar. Þar verður gist á Hótel Ísafirði næstu 2 nætur.
Kvöldverður á hóteli. (um 500 km.)
23. ágúst
Föstudagur
Að loknum morgunverði er ekið til Bolungarvíkur og Skálavíkur og síðan upp á Bolafjall. Þaðan er haldið aftur til Ísafjarðar og farið í siglingu út í Jökulfirði. Tekið land í yfirgefna þorpinu Hesteyri, farið í sögugöngu um þorpið og í kaffi í Læknishúsinu. Komið aftur til Ísafjarðar milli klukkan 17:00 og 18:00.
Kvöldverður á hóteli.
24. ágúst
Laugardagur
Haldið snemma af stað og ekið um Vestfirði, m.a. með stoppi við fossinn Dynjanda og til Bíldudals, þar sem hádegisverður bíður okkar. Frá Bíldudal förum við svo út í Selárdal þar sem við skoðum verk „listamannsins með barnshjartað“ og sjáum einnig Uppsali, þar sem einbúinn Gísli Oktavíus Gíslason bjó. Ekið þaðan í Sælingsdal í Dölum. Kvöldverður og gisting þar. (um 360 km.)
25. ágúst
Sunnudagur
Haldið heim á leið rétt fyrir hádegi og ekið í Kópavog. Hádegisverður snæddur á leiðinni. (um 175 km.)

Áætlað verð á mann: 150.000 kr.*
Innifalið í verði er gisting í tveggjamanna herbergjum með baði, morgunverður, kvöldverður, þrír hádegisverðir, allur akstur og skoðunarfeðir samkvæmt lýsingu ásamt leiðsögn.

Aukagjald fyrir einsmanns herbergi: 32.500 kr.

Hvað varðar aðra skilmála vísast í “almenna ferðarskilmála” á heimasíðu GJ Travel; www.ferdir.is