Dagsferð 2026

Fimmtudaginn 28. maí heimsækjum við Grindavík og keyrum hring um Hvalsnesið.

Brottför kl 13:00 frá Digranesvegi 7, Kópavogi. Förum til Grindavíkur skoðum þar varnargarðinn og þau ummerki sem ekki er búið að laga eftir eldgosið og jarðhræringarnar í fyrra.

Keyrum svo hring um Hvalsnesið með viðkomu í Hvalsneskirkju, þar fáum við leiðsögn um kirkjuna og síðan njótum við veitinga á kaffi Golu sem er nýlegt kaffihús við Hvalsneskirkju í eigu systra sem eru ættaðar af Hvalsnesinu en núverandi Kópavogsbúa. Smellið hér til að skrá ykkur í ferð.

Verð: 6000.-kr.

Innifalið er Rútuferðin, aðgangseyrir og leiðsögn í Hvalsneskirkju og veitingar á Kaffi Golu.

Áætlaður komutími í Kópavog er um kl 17:00